Leao fáanlegur á lægra verði - Bernardo bíður eftir Barcelona - Framherji Frankfurt eftirsóttur
   lau 30. maí 2026 17:26
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Vill sjá Enrique taka við Liverpool - „Betra seint en aldrei"
Mynd: EPA
Arne Slot var rekinn sem stjóri Liverpool í morgun eftir tveggja ára starf hjá félaginu.

UFC bardagakappinn Paddy 'The Baddy' Pimblett, stuðningsmaður Liverpool, var í settinu á CBS Sports fyrir úrslitaleik PSG og Arsenal í Meistaradeildinni í kvöld.

Hann vill að Luis Enrique, stjóri PSG, taki við stjórastarfinu hjá Liverpool. Danny Murphy, fyrrum leikmaður Liverpool, hefur einnig sagt frá því að hann vilji fá Enrique.

„Þetta var löngu tímabært, mér fannst að hann hefði átt að vera rekinn þegar við töpuðum 4-1 gegn PSV. Lið eins og Liverpool á ekki að tapa á heimavelli gegn hollensku liði. Betra seint en aldrei en þetta er aðeins of seint," sagði Pimblett.

„Ég vil að Luis Enrique vinni í kvöld og hætti sem stjóri PSG. Hann vill nýja áskorun því við erum áskorun eins og staðan er."

Fréttir dagsins greina hins vegar frá því að Andoni Iraola muni að öllum líkindum taka við af Slot.



Slapp
banner