Leao fáanlegur á lægra verði - Bernardo bíður eftir Barcelona - Framherji Frankfurt eftirsóttur
   lau 30. maí 2026 16:38
Brynjar Ingi Erluson
Emelía skoraði þegar FCK komst upp í efstu deild - Andrea og Vigdís bikarmeistarar
Kvenaboltinn
Emelía og Sunneva Hrönn eru komnar upp í efstu deild
Emelía og Sunneva Hrönn eru komnar upp í efstu deild
Mynd: FCK
Andrea Rut og Vigdís eru bikarmeistarar í Belgíu
Andrea Rut og Vigdís eru bikarmeistarar í Belgíu
Mynd: Anderlecht
Íslendingalið FCK er komið upp í efstu deild Danmerkur en þetta varð ljóst eftir 4-1 sigur liðsins á Thisted í dag. Emelía Óskarsdóttir var á skotskónum með FCK sem skrifaði nýjan kafla í sögu félagsins. Andrea Rut Bjarnadóttir og Vigdís Lilja Kristjánsdóttir unnu þá belgíska bikarinn með Anderlecht.

Kvennaliðið var sett á laggirnar fyrir tveimur árum og hóf göngu sína í C-deildinni.

Liðið kom sér strax upp í B-deildina og fór síðan í annað sinn upp um deild í dag.

Emelía Óskarsdóttir skoraði fyrsta mark FCK í 4-1 sigrinum á Thisted en hún og Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir voru í byrjunarliði liðsins.

FCK er í öðru sæti deildarinnar með 17 stig þegar ein umferð er eftir og búið að tryggja sér sæti í dönsku úrvalsdeildina.

Hafrún Rakel Halldórsdóttir byrjaði hjá Bröndby sem gerði 2-2 jafntefli við Nordsjælland í meistarariðli úrvalsdeildarinnar Bröndby missti af tækifærinu að komast á toppinn í deildinni en liðið er með 47 stig í öðru sæti, jafnmörg og Koge sem á leik til góða.

Diljá Ýr Zomers byrjaði hjá Brann sem vann Álasund, 2-1, í norsku úrvalsdeildinni. Daníela Dögg Guðnadóttir kom inn af bekknum hjá Álasundi. Brann er á toppnum með 28 stig en Álasund í 4. sæti með 19 stig.

Andrea Rut Bjarnadóttir og Vigdís Lilja Kristjánsdóttir urðu belgískir bikarmeistarar með Anderlecht sem vann öruggan 3-0 sigur á Weregem í úrslitum í dag.

Frábær endir á tímabilinu hjá Andreu og Vigdísi sem töpuðu titilbaráttunni gegn Leuven í deildinni.

María Catharina Ólafsdóttir Gros kom inn af bekknum hjá Djurgården sem gerði markalaust jafntefli við Eskilstuna í sænsku úrvalsdeildinni. Djurgården er í 9. sæti með 8 stig.

Sigdís Eva Bárðardóttir kom þá inn af bekknum hjá Norrköping sem tapaði fyrir Piteå, 2-1. Norrköping er í 10. sæti með 6 stig.


Slapp
banner