Íslenska landsliðið heimsótti það japanska í æfingaleik ytra í dag. Fyrri hálfleikur var mjög rólegur. Japanir byrjuðu leikinn mun betur og héldu vel í boltann. Logi Tómasson komst nálægt því að skora fyrir Ísland en hann átti fínt skot rétt framhjá markinu.
Japanir vildu fá víti snemma í seinni hálfleik þegar Hákon Rafn Valdimarsson varði boltann í höndina á Andra Fannari Baldurssyni en ekkert dæmt.
Stuttu síðar var Willum Þór Willumsson í góðu færi en skaut framhjá. Brynjólfur Willumsson komst í færi strax í kjölfarið en skallinn ekki nægilega góður.
Þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma tókst Japönum að brjóta ísinn. Koki Ogawa skoraði með skalla í stöngina og inn og tryggði Japönum sigurinn.
Ísland heldur nú til Bandaríkjanna og mætir Argentínu í æfingaleik klukkan eitt eftir miðnætti aðfaranótt miðvikudagsins 10. júní.

