Arsenal er komið í forystu gegn Paris Saint-Germain í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Það var Kai Havertz sem skoraði markið á 6. mínútu leiksins.
Havertz elskar að skora í úrslitaleik Meistaradeildarinnar, en hann gerði sigurmarkið fyrir Chelsea er liðið vann keppnina árið 2021.
Hann hafði heppnina með sér í liði þegar hann kom Arsenal yfir gegn PSG á 6. mínútu. Marquinhos reyndi að hreinsa boltanum sem fór af Leandro Trossard og í hlaupaleið Havertz sem keyrði alla leið upp að endamörkum áður en hann hamraði boltanum í þaknetið.
Frábært mark hjá Arsenal og leyfðu stuðningsmenn sér að fagna enda einu skrefi nær því að vinna Meistaradeildina í fyrsta sinn í sögu félagsins.
Hægt er að sjá markið hér fyrir neðan.
Sjáðu markið hér


