Staðan er 1-1 í úrslitaleik Meistaradeildarinnar þar sem PSG og Arsenal eigast við í Búdapest. Kai Havertz kom Arsenal yfir snemma leiks en Ousmane Dembele jafnaði metin eftir rúmlega klukkutíma leik með marki úr vítaspyrnu.
Dómari leiksins tók vel á töfum Arsenal en hann flautaði til loka fyrri hálfleiks þegar Bukayo Saka var að taka hornspyrnu en þeir tóku sér góðan tíma í föst leikatríði. Hann tók á þessu strax í upphafi seinni hálfleiks þegar Cristhian Mosquera fékk gult fyrir að vera of lengi að taka innkast.
Hann var heppinn að fá ekki sitt annað gula spjald þegar hann braut á Khvicha Kvaratskhelia þegar vítaspyrnan var dæmd. Kvaratskhelia var vel merktur eftir tæklinguna.
„Mosquera var kannski heppinn að sjá ekki sitt annað gual spjald. Arsenal má vera þakklátt að hann sé enn á vellinum, hann hafði gert góða hluti fram að þessu," sagði Charlotte Marsh hjá Sky Sports.
Khvicha Kvaratskhelia is putting his body on the line in the UCL final ???? pic.twitter.com/s5bxp0vnEn
— ESPN FC (@ESPNFC) May 30, 2026



