Aston Villa virðist vera fá pólska miðvörðinn Jan Bednarek í sínar raðir frá Southampton. Frá þessu greinir The Athletic. Bednarek var mikið orðaður við West Ham en valdi frekar að fara til Villa.
Bednarek, sem er 26 ára, mun skrifa undir eins árs lánssamning við Aston Villa.
Bednarek, sem er 26 ára, mun skrifa undir eins árs lánssamning við Aston Villa.
Villa hefur verið í leit að miðverði eftir að Diego Carlos meiddist illa í upphafi tímabilsins.
Southampton er að vinna í því að fá inn miðvörð í staðinn fyrir Bednarek og eru þeir Duje Caleta-Car hjá Marseille og Nat Phillips hjá Liverpool efstir á blaði.
Ef Southampton nær að landa öðrum hvorum þeirra þá verður Bednarek hleypt í burtu á láni.
Athugasemdir