Spænsk stórlið vilja Cucurella - Liverpool heldur áfram að reyna við Diomande - Arsenal hyggst fá Rogers og Kroupi
banner
   mið 03. júní 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ísland í dag - Fjölnir og Árborg í góðri stöðu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Það eru sex leikir á dagskrá í íslenska boltanum í kvöld, tveir eru í 2. deild kvenna og hinir fjórir í 4. deild karla.

Í kvennaboltanum eiga Augnablik og Álftanes heimaleiki við Dalvík/Reyni og topplið Fjölnis.

Fjölnir er með 10 stig eftir 4 umferðir, einu stigi fyrir ofan Einherja og Aftureldingu en Mosfellingar eiga leik til góða.

Karlamegin eiga toppbaráttulið Árborgar og Hamars áhugaverða útileiki. Árborg heimsækir ÍH og getur komist á toppinn með sigri á meðan Hamar kíkir í heimsókn til Grafarvogs. Hvergerðingar eru aðeins einu stigi á eftir nágrönnum sínum frá Selfossi.

Fleiri Sunnlendingar mæta til leiks þegar KFR heimsækir Álafoss í neðsta hluta deildarinnar og að lokum eigast Hafnir og Elliði við.

2. deild kvenna
18:00 Augnablik-Dalvík/Reynir (Fífan)
19:15 Álftanes-Fjölnir (HTH völlurinn)

4. deild karla
19:15 Vængir Júpiters-Hamar (Fjölnisvöllur - Gervigras)
20:00 Álafoss-KFR (Malbikstöðin að Varmá)
20:00 ÍH-Árborg (Skessan)
20:15 Hafnir-Elliði (Nettóhöllin)
2. deild kvenna
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Fjölnir 4 3 1 0 19 - 3 +16 10
2.    Afturelding 3 3 0 0 19 - 1 +18 9
3.    Einherji 4 3 0 1 22 - 5 +17 9
4.    Vestri 4 2 2 0 14 - 3 +11 8
5.    Fylkir 3 2 1 0 12 - 2 +10 7
6.    Augnablik 4 2 0 2 4 - 15 -11 6
7.    Dalvík/Reynir 3 1 1 1 7 - 8 -1 4
8.    KÞ 4 1 1 2 6 - 9 -3 4
9.    Álftanes 4 0 2 2 3 - 9 -6 2
10.    ÍR 4 0 1 3 2 - 11 -9 1
11.    Smári 4 0 1 3 2 - 34 -32 1
12.    KFR 3 0 0 3 1 - 11 -10 0
4. deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Álftanes 4 4 0 0 13 - 5 +8 12
2.    Árborg 4 3 1 0 14 - 1 +13 10
3.    Hamar 4 3 0 1 17 - 12 +5 9
4.    Úlfarnir 4 2 1 1 9 - 7 +2 7
5.    Elliði 4 2 0 2 12 - 11 +1 6
6.    ÍH 4 1 0 3 15 - 15 0 3
7.    KFR 4 1 0 3 12 - 16 -4 3
8.    Vængir Júpiters 4 1 0 3 7 - 11 -4 3
9.    Álafoss 4 1 0 3 4 - 9 -5 3
10.    Hafnir 4 1 0 3 4 - 20 -16 3
Slapp
banner
banner