Newcastle United er búið að kveðja fimm leikmenn aðalliðsins sem runnu út á samningi.
Bakverðirnir Kieran Trippier, Emil Krafth og Matt Targett eru farnir ásamt varamarkvörðunum John Ruddy og Max Thompson sem léku aldrei keppnisleik á dvöl sinni í Newcastle.
Targett, sem er einn af fyrstu leikmönnunum sem Eddie Howe fékk til Newcastle á stjóratíð sinni, spilaði 47 leiki á fjórum árum með liðinu en hann var mikilvægur hlekkur á láni hjá sterku byrjunarliði Middlesbrough á nýliðinni leiktíð. Hann hjálpaði liðinu að komast í úrslitaleik Championship umspilsins en tapaði þar naumlega gegn Hull City.
Krafth lék 106 leiki á sjö árum hjá félaginu á meðan Trippier var algjör lykilmaður sem lék 160 leiki á fjóru og hálfu ári auk þess að bera fyrirliðabandið í tvö ár.
29.05.2026 12:43
Trippier fer til Úlfanna
Aaron Ramsdale kveður einnig félagið eftir að hafa veitt Nick Pope samkeppni um markmannsstöðuna. Ramsdale var hjá Newcastle á láni frá Southampton.
Að lokum er reynsluboltinn Fabian Schär búinn að skrifa undir eins árs samning á lækkuðum kjörum. Hann er 34 ára og að hefja sitt níunda tímabil í Newcastle.
23.05.2026 22:35
34 ára með samningstilboð frá Newcastle
Here to stay! ????????
— Newcastle United (@NUFC) June 2, 2026
Fabian Schär has signed a new deal until the end of the '26/27 season ???? pic.twitter.com/VD1cAOTLNT




