Spænsk stórlið vilja Cucurella - Liverpool heldur áfram að reyna við Diomande - Arsenal hyggst fá Rogers og Kroupi
banner
   mið 03. júní 2026 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Setur stimpilinn á félagaskipti Marco Silva
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Fabrizio Romano hefur svo gott sem staðfest tíðindi sem fjölmiðlar kepptust við að greina frá í gær.

Portúgalski þjálfarinn Marco Silva er á leið heim til að taka við stórveldi Benfica, sem endaði í þriðja sæti portúgölsku deildarinnar með 80 stig eftir 34 umferðir undir stjórn José Mourinho.

   02.06.2026 12:28
Marco Silva færist nær Benfica


Mourinho er á leið til Real Madrid og voru stjórnendur Benfica fljótir að finna arftaka fyrir hann. Benfica fór í gegnum deildartímabilið án þess að tapa einum einasta leik en tókst þrátt fyrir það ekki að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð. Benfica þarf að fara í gegnum forkeppni Evrópudeildarinnar til að vinna sér inn þátttökurétt í deildarkeppninni.

Romano er búinn að setja „here we go!" stimpilinn á félagaskiptin og segir að Silva gerir tveggja ára samning við Benfica með möguleika á auka ári.

Silva virðist því vera að snúa aftur heim til Portúgal í fyrsta sinn í rúman áratug, en hann er 48 ára gamall.

Silva stýrði einnig Sporting CP, nágranna- og fjandliði Benfica, í heimalandinu áður en hann tók við Olympiakos, Hull City, Watford og Everton. Hann hefur verið við stjórnvölinn hjá Fulham síðustu fimm ár og fer til Benfica á frjálsri sölu.

   02.06.2026 17:08
Fulham kveður Silva - „Félagið verður alltaf í mínu hjarta“

Slapp
banner
banner