U16 landslið kvenna mætti til leiks á þróunarmót UEFA sem lauk í síðustu viku.
Eftir tap gegn Ungverjalandi í fyrstu umferð töpuðu stelpurnar einnig gegn Írlandi og Finnlandi til að enda mótið án þess að skora mark eða næla sér í stig.
Stelpurnar töpuðu naumlega gegn Ungverjum og fengu svo þrjú mörk á sig gegn Írum áður en þær spiluðu við heimastelpur í liði Finnlands. Þeim leik lauk með eins marks sigri Finna.
Ísland endar því án stiga og með markatöluna 0-5 í þremur leikjum.
07.05.2026 17:30
Hópur U16 - Þrjú félög með flesta fulltrúa




