Sigrún Eva Sigurðardóttir er búin að skrifa undir nýjan tveggja ára samning við ÍA.
Sigrún Eva er fædd árið 2002 og kemur upp í gegnum uppeldisstarfið hjá ÍA.
Hún er gríðarlega reynslumikil þrátt fyrir ungan aldur, með yfir 150 deildarleiki að baki í efstu deildum íslenska boltans auk fjögurra leikja fyrir U17 og U18 landsliðin.
Sigrún hefur alla tíð leikið fyrir ÍA að undanskildum þremur árum þegar hún var hjá Aftureldingu, en snéri aftur heim á Skagann fyrir síðustu leiktíð.
„Það eru frábær tíðindi fyrir félagið að Sigrún Eva ákveði að taka slaginn með ÍA næstu tvö tímabil. Hún er öflugur liðsmaður, mikill Skagamaður og frábær fyrirmynd fyrir unga leikmenn félagsins," segir í tilkynningu frá ÍA.



