Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 03. október 2019 21:26
Ívan Guðjón Baldursson
Willock: Erum með stjóra sem gefur tækifæri
Willock er með tvö mörk í tveimur leikjum í Evrópudeildinni.
Willock er með tvö mörk í tveimur leikjum í Evrópudeildinni.
Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn ungi Joe Willock hefur hrifið marga með frammistöðum sínum fyrir Arsenal á upphafi tímabils.

Hann var í byrjunarliðinu gegn Standard Liege í riðlakeppni Evrópudeildarinnar fyrr í kvöld og skoraði í 4-0 sigri. Þetta var hans þriðja mark í þremur síðustu byrjunarliðsleikjum.

Willock er tvítugur og er afar þakklátur Unai Emery fyrir að gefa sér þetta tækifæri.

„Ég hef verið að vinna hörðum höndum að því að bæta mig fyrir framan markið og ég er ánægður að sjá þá vinnu skila sér," sagði Willock.

„Við erum með stjóra hérna sem gefur ungum leikmönnum tækifæri. Ég þarf að nýta tækifærin mín til að sanna að þetta sé rétt stefna."
Athugasemdir
banner
banner
banner