Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 03. desember 2017 11:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Segir að Real Madrid hafi áhuga á Salah
Mynd: Getty Images
Hector Cuper, landsliðsþjálfari Egyptalands, heldur því fram að Real Madrid vilji næla í Mohamed Salah frá Liverpool.

Salah var keyptur til Liverpool frá Roma í sumar og hefur heldur betur slegið í gegn. Hann hefur skorað 17 mörk og lagt upp fjögur í 21 leik frá því hann gekk í raðir félagsins.

„Ég hef fengið fréttir um það að Real Madrid hafi áhuga á Salah," sagði Cuper við ON Sport TV í Egyptalandi.

„Mitt ráð til hans er að flýta sér ekki. Að mínu mati er hann í stórkostlegri stöðu núna."

Salah verður í aðalhlutverki hjá Cuper næsta sumar þegar HM í Rússlandi fer fram. Þar er Egyptaland í A-riðli með heimamönnum í Rússlandi, Sádí Arabíu og Úrúgvæ.
Athugasemdir
banner