Dele Alli og Ashley Young æfa væntanlega báðir með enska landsliðinu í dag fyrir leikinn gegn Svíþjóð í 8-liða úrslitum HM á laugardaginn.
Alli hefur verið að glíma við meiðsli á læri á meðan Young meiddist á ökkla gegn Kolumbíu í fyrrakvöld.
Báðir hafa þeir verið í stífu prógrami hjá sjúkraþjálfurum og þeir virðast vera klárir í slaginn fyrir laugardaginn.
Jamie Vardy er tæpur fyrir leikinn á laugardag en hann meiddist á nára gegn Kolumbíu og gat ekki tekið vítaspyrnu í vítaspyrnukeppninni.
Harry Kane, Kyle Walker og Jesse Lingard verða hins vegar allir klárir í slaginn en þeir fundu fyrir smávægilegum meiðslum gegn Kolumbíu.
Athugasemdir