Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 05. október 2019 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
U19 kvenna getur tryggt sig í milliriðil - Leikið í Árbæ
Ísland fagnar marki gegn Grikklandi.
Ísland fagnar marki gegn Grikklandi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
U19 ára landslið kvenna mætir Kasakstan í dag, laugardag, í öðrum leik sínum í undankeppni EM 2020.

Leikurinn fer fram á Würth vellinum í Árbæ og hefst kl. 14:00. Hægt verður að horfa á leikinn í beinni útsendingu á SportTV.is.

Stelpurnar unnu frábæran 6-0 sigur gegn Grikkjum í fyrsta leik á meðan Kasakstan tapaði 0-14 gegn Spáni. Á sama tíma og stelpurnar mæta Kasakstan leika Spánn og Grikkland á Víkingsvelli.

Sigur í leiknum tryggir Íslandi sæti í milliriðlum undankeppni EM 2020.

Við hvetjum auðvitað fólk til að fjölmenna á völlinn og styðja stelpurnar til sigurs!

Leikir Íslands:
2. október - Ísland 6 - 0 Grikkland á Víkingsvelli kl. 17:00
5. október - Ísland - Kasakstan á Würth vellinum kl. 14:00
8. október - Ísland - Spánn á Origo vellinum kl. 17:00
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner