Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 06. febrúar 2020 14:38
Magnús Már Einarsson
England og Wales berjast um ungan leikmann Liverpool
Mynd: Getty Images
Neco Williams, hægri bakvörður Liverpool, vakti athygli í sigrinum á Shrewsbury í enska bikarnum í vikunni.

Hinn 18 ára gamli Neco þykir mikið efni en hann hefur spilað með U19 ára landsliði Wales.

Neco þykir koma til greina í landslið Wales í framtíðinni og Ryan Giggs landsliðsþjálfari fylgist með honum.

Amma og afi Neco koma frá Englandi og því er hann einnig gjaldgengur í enska landslið.

Paul Simpson, þjálfari U20 liðs Englendinga, fylgdist með Williams í leiknum gegn Shrewsbury í vikunni og hann gæti reynt að sannfæra hann um að velja frekar að spila fyrir hönd Englands en Wales.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner