Mikel Arteta vann fimmtugasta deildarleik sinn sem stjóri Arsenal er liðið lagði Crystal Palace að velli, 2-0, í opnunarleik deildarinnar í gær en það gerði hann í 98 leikjum.
Spænski stjórinn tók við Arsenal fyrir þremur árum síðan og hefur síðan þá gert ágætis hluti með liðið.
Í gær vann hann 50. deildarleik sinn sem stjóri liðsins og gerði hann það í 98 leikjum.
Arsene Wenger, sem stýrði liðinu frá 1996 til 2018, er sá eini sem náði í 50 sigra í færri leikjum en Arteta en hann þurfti 94 leiki til þess.
Árangur Arteta talar því sínu máli en lið Arsenal lítur mjög vel út eftir góða styrkingu í sumar.
50 - Mikel Arteta has won 50 league matches with Arsenal after 98 games in charge, making him the second-quickest manager to reach 50 top-flight wins for the Gunners, after Arsène Wenger (94th game). Mantle. pic.twitter.com/7d6sOyUmWC
— OptaJoe (@OptaJoe) August 5, 2022
Athugasemdir