Newcastle vill Elanga - Liverpool leggur fram nýtt tilboð í Wirtz - Höjlund til Inter?
   lau 07. júní 2025 19:09
Ívan Guðjón Baldursson
Besta deild kvenna: Þægilegt fyrir Þrótt
Kvenaboltinn
Mynd: Hrefna Morthens
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þróttur R. 2 - 0 Þór/KA
1-0 María Eva Eyjólfsdóttir ('39)
2-0 Freyja Karín Þorvarðardóttir ('59)

Lestu um leikinn: Þróttur R. 2 -  0 Þór/KA

Þróttur R. tók á móti Þór/KA í lokaleik dagsins í Bestu deild kvenna og úr varð spennandi viðureign.

Heimakonur í liði Þróttar voru sterkari aðilinn og fengu besta færi fyrri hálfleiksins áður en María Eva Eyjólfsdóttir tók forystuna eftir hornspyrnu á 39. mínútu. Jessica Grace var í miklu basli á milli stanganna, hún fór af marklínunni og missti af boltanum áður en María skoraði í autt netið. Þór/KA vildi fá dæmda hendi í aðdraganda marksins en fékk ekki.

Gestirnir frá Akureyri komust nálægt því að jafna skömmu síðar en Jelena Tinna Kujundzic bjargaði á marklínu. Staðan var því nokkuð verðskuldað 1-0 í leikhlé.

Freyja Karín Þorvarðardóttir tvöfaldaði forystu heimakvenna í síðari hálfleik eftir laglegt einstaklingsframtak. Hún keyrði upp völlinn frá miðjulínunni og komst alla leið inn í vítateig áður en hún hleypti af skoti. Boltinn fór beint á Jessica í markinu en hún missti hann í netið á afar klaufalegan hátt. Staðan orðin 2-0 og geta bæði mörk Þróttara skrifast á slaka frammistöðu hjá markverði gestanna.

Eftir seinna markið varð Þór/KA hættulegra liðið á vellinum og komst í góð færi, án þess þó að skora. Mollee Swift átti stórleik á milli stanganna og bjargaði nokkrum dauðafærum fyrir leikslok. Lokatölur 2-0.

Þróttur endurheimtir toppsæti deildarinnar með þessum sigri þar sem liðið er með þriggja stiga forystu á Breiðablik og FH. Þróttarar eiga 22 stig eftir 8 umferðir, þær eru því aðeins búnar að missa af tveimur stigum það sem af er tímabils.

Þór/KA er áfram í fjórða sæti, með 15 stig.
Athugasemdir
banner
banner