Newcastle vill Elanga - Liverpool leggur fram nýtt tilboð í Wirtz - Höjlund til Inter?
   lau 07. júní 2025 11:03
Brynjar Ingi Erluson
Reijnders á leið í læknisskoðun hjá Man City
Mynd: EPA
Hollenski miðjumaðurinn Tijjani Reijnders er á leið í læknisskoðun hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Manchester City en það er Sky Sports sem segir frá þessu í dag.

Reijnders er 26 ára gamall og verið með allra bestu miðjumönnum Seríu A á tímabilinu.

Man City náði samkomulagi við Milan um kaup á Reijnders á dögunum og er hann nú á leið í læknisskoðun.

Kaupverðið nemur um 46,3 milljónum punda. Að læknisskoðuninni lokinni mun Reijnders skrifa undir fimm ára samning við lærisveina Pep Guardiola.

Á næstu dögum mun Man City klára kaup á tveimur leikmönnum til viðbótar, þeim Rayan Ait-Nouri frá Wolves og Rayan Cherki frá Lyon.
Athugasemdir
banner