Þremur síðustu leikjum dagsins er lokið í undankeppni Evrópuþjóða fyrir HM á næsta ári.
Finnland tók þar á móti Hollandi og lenti undir snemma leiks. Memphis Depay skoraði á sjöttu mínútu áður en Denzel Dumfries tvöfaldaði forystuna eftir undirbúning frá Cody Gakpo.
Hollendingar voru sterkari aðilinn og óheppnir að bæta ekki fleirum mörkum við. Lokatölur urðu 0-2 en þetta var fyrsti leikur Hollands í undankeppninni. Finnar eiga fjögur stig eftir þrjár umferðir.
Á sama tíma gerði Albanía markalaust jafntefli í hatrömmum grannaslag gegn Serbíu. Rey Manaj mun eiga erfitt með svefn í nótt eftir að hafa klúðrað vítaspyrnu fyrir heimamenn undir lok fyrri hálfleiks.
Leikurinn var nokkuð jafn og afar tíðindalítill, þar sem hann einkenndist af mikilli baráttu. Fyrri hálfleikurinn bauð upp á nokkur flott færi en seinni hálfleikurinn var steindauður.
Albanir eiga fjögur stig eftir þrjár umferðir en þetta var fyrsti leikur Serba.
Að lokum hafði Austurríki betur gegn Rúmeníu. Heimamenn voru talsvert sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og tóku forystuna á 42. mínútu, þegar Michael Gregoritsch setti boltann í netið eftir undirbúning frá Maximilian Wöber.
Staðan var 1-0 í leikhlé þó hún hefði hæglega getað verið stærri en seinni hálfleikurinn var talsvert jafnari, þar sem gestirnir frá Rúmeníu sýndu flottan fótbolta og voru sterkari aðilinn.
Marcel Sabitzer tvöfaldaði þó forystu heimamanna í síðari hálfleiknum og tókst Rúmenum ekki að minnka muninn fyrr en í uppbótartíma, þegar var orðið alltof seint að ná inn jöfnunarmarki.
Albanía 0 - 0 Serbía
0-0 Rey Manaj ('45+2, Misnotað víti)
Finnland 0 - 2 Holland
0-1 Memphis Depay ('6 )
0-2 Denzel Dumfries ('23 )
Austurríki 2 - 1 Rúmenía
1-0 Michael Gregoritsch ('42 )
2-0 Marcel Sabitzer ('60 )
2-1 Denis Alibec ('95 )
Athugasemdir