Newcastle vill Elanga - Liverpool leggur fram nýtt tilboð í Wirtz - Höjlund til Inter?
   lau 07. júní 2025 11:34
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Sölvi ánægður að fá Brilla inn: Held að UEFA sé orðið þreytt á okkur
Sölvi Geir er á sínu fyrsta ári sem aðalþjálfari Víkings, árin á undan var hann aðstoðarþjálfari Arnars Gunnlaugssonar.
Sölvi Geir er á sínu fyrsta ári sem aðalþjálfari Víkings, árin á undan var hann aðstoðarþjálfari Arnars Gunnlaugssonar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Brynjar Björn hefur störf í Víkinni eftir landsleikjahlé.
Brynjar Björn hefur störf í Víkinni eftir landsleikjahlé.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingar komust í umspilið um sæti í 16-liða úrslitum Sambandsdeildarinnar í vetur.
Víkingar komust í umspilið um sæti í 16-liða úrslitum Sambandsdeildarinnar í vetur.
Mynd: Víkingur
Léku saman með landsliðinu.
Léku saman með landsliðinu.
Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson
„Mér líst mjög vel á að vinna með Brynjari Birni, við erum náttúrulega gamlir liðsfélagar úr landsliðinu og ég þekki Brynjar Björn ágætlega. Það er flott að fá Brilla inn í teymið, flottur þjálfari með mikla reynslu, bæði sem leikmaður og er búinn að vera þjálfarabransanum núna undanfarið, farið út og svona. Hann er flottur þjálfari sem eykur við teymið okkar, gott að fá hann. Ég glaður að fá hann inn í teymið," segir Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, við Fótbolta.net.

Brynjar Björn Gunnarsson var í gær tilkynntur sem meðþjálfari Sölva en það er krafa hjá UEFA að lið sem taka þátt í Evrópukeppnum séu með aðalþjálfara sem er með UEFA Pro þjálfaragráðuna. Sölvi er ekki kominn með hana og því fóru Víkingar í að ráða Brynjar Björn inn í teymið.

„Við vorum saman í landsliðinu og ég hef alltaf kunnað vel við Brynjar Björn. Þegar við vissum af því að við þyrftum að fá þjálfara inn með Pro gráðu, þá fékk ég lista og hann var efstur á blaði þegar kom að því að fá einn inn."

„Við reyndum að fá undanþágu frá UEFA, en ég held að UEFA menn séu orðnir þreyttir á okkur Íslendingum, bæði með vallarmál með landsliðinu og vallarmál með félagsliðum. Það er alltaf verið að fá undanþágur hér og þar, held bara að þeir hafi fengið nóg og þ.a.l. fengum við ekki undanþágu með þetta og þurftum að grípa í að ráða inn mann með gráðuna."


Sölvi reynir við Pro þjálfaragráðuna á næsta ári. „Í byrjun '26, held að ég komist inn í prógrammið þá. Ég er búinn að taka B- og A-gráðuna frá því að ég byrjaði að þjálfa, hef ekkert getað tekið hana fyrr en þetta, það er alltaf smá tími sem maður þarf að bíða á milli. Ég hef verið að djöflast í að ná þessum gráðum eins hratt og hægt er, bara ekki verið möguleiki að ná henni fyrr."

Sölvi talaði um lista áðan, af aðilum sem eru með Pro gráðuna. Voru mörg nöfn á listanum sem hefðu getað komið til Víkings?

„Það eru alveg mörg nöfn þarna, en maður þarf að viðhalda gráðunni með punktum, þarf að mæta á fyrirlestra, fá endurmenntun. Maður þarf að vera með fimmtán punkta á þriggja ára fresti til að viðhalda prófinu, annars er það ekki í gildi. Brynjar var sá aðili sem okkur leist best á, ég þekki vel til hans og hann var ekki í starfi. Þetta lá því vel fyrir og okkur leist öllum vel á það, mér, Kára og fleirum innan Víkings."

Kom einhvern tímann til greina að láta reyna á hvað UEFA myndi gera ef Víkingur myndi ekki uppfylla skilyrðin um aðalþjálfara með Pro gráðuna?

„Nei, svo sem ekki. Það er alltof mikil áhætta, stórar sektir eða jafnvel bannað að taka þátt. Það var því aldrei pæling að taka þann séns. Þetta er mjög góð lausn að fá Brilla inn í teymið í kringum Evrópukeppnina."

Dregið verður í 1. umferðina eftir næstu helgi, Víkingur verður 'seeded', í efri styrkleikaflokki, þegar dregið verður í 1. umferðina þar sem Víkingur hefur náð góðum árangri síðustu ár og safna mörgum Evrópustigum. Valur, sem verður einnig í 1. umferðinni, verður í neðri styrkleikaflokki. Er kominn einhver spenningur fyrir drættinum?

„Auðvitað er þetta alltaf spennandi, þetta er lotterí, þú getur fengið sterkan andstæðing eða veikari. Það er alltaf spennandi hvern maður fær. Við munum kíkja á þetta þegar nær dregur, hvaða möguleikar eru, og skapa smá stemningu í kringum dráttinn," segir Sölvi.

Dregið verður 17. júní í 1. umferðina og 18. júní í 2. umferðina. Fyrri leikurinn í 1. umferðinni fer fram 10. júlí og sá seinni viku síðar. Þegar nær dregur drættinum kemur betur í ljós hverjir mögulegir andstæðingar Víkings og Vals geta verið.
Athugasemdir
banner
banner