Liverpool er að ganga frá kaupum á ungverska markverðinum Armin Pecsi. Frá þessu segir The Athletic.
Kaupverðið er ein og hálf milljón punda en Liverpool er að kaupa hann frá Puskas Akademia í heimalandinu.
Kaupverðið er ein og hálf milljón punda en Liverpool er að kaupa hann frá Puskas Akademia í heimalandinu.
Pesci er tvítugur að aldri en er þrátt fyrir ungan aldur með mikla reynslu. Hann var aðalmarkvörður næstbesta liðs Ungverjalands á nýliðnu tímabili.
Liverpool telur að Pesci sé mjög efnilegur og muni koma með aukna breidd inn í markvarðarteymi félagsins.
Hann mun byrja næsta tímabil með U21 liði Liverpool en það mun væntanlega hjálpa honum að æfa með Alisson og Giorgi Mamardashvili.
Athugasemdir