Manchester City hefur verið í viðræðum við Newcastle United um bakvörðinn öfluga Tino Livramento, sem getur bæði spilað sem hægri eða vinstri bakvörður.
Það er ólíklegt að stórveldinu takist að kaupa leikmanninn þar sem Newcastle neitar að lækka verðmiðann.
Livramento er aðalskotmark Man City sem arftaki fyrir Kyle Walker í hægri bakverði, en félagið er ekki reiðubúið til að mæta kröfum Newcastle.
Það er mjög erfitt að kaupa leikmenn frá Newcastle þar sem eigendur félagsins eru þeir ríkustu í ensku úrvalsdeildinni.
Man City þarf því að leita sér að öðrum hægri bakverði sem fyrst. Félagið vill helst kaupa nýjan bakvörð inn fyrir upphaf HM félagsliða.
Athugasemdir