Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   lau 07. júní 2025 20:22
Ívan Guðjón Baldursson
Dortmund hafnaði fyrsta tilboði Chelsea
Mynd: EPA
Chelsea er í leit að nýjum kantmanni og er Jamie Bynoe-Gittens efstur á óskalistanum.

Chelsea er í viðræðum við Borussia Dortmund um kaup á þessum efnilega leikmanni, en Dortmund er búið að hafna fyrsta tilboðinu sem hljóðaði upp á rúmlega 35 milljónir evra.

Gittens vill ólmur skipta til Chelsea og er búinn að samþykkja samning frá félaginu.

Chelsea er að undirbúa nýtt tilboð í leikmanninn, en talið er að Dortmund vilji um 50 milljónir evra.

Til gamans má geta að Manchester City er með 10% endursölurétt á Gittens og fær því hluta af kaupverðinu í kassann.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner