Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fim 05. júní 2025 18:16
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Cherki búinn að ná samkomulagi við Man City
Mynd: EPA
Rayan Cherki, leikmaður Lyon, er gríðarlega eftirsóttur en hann hefur verið orðaður við Liverpool og Man City.

Fabrizio Romano greinir frá því að leikmaðurinn sé búinn að ná samkomulagi við Man City.

City og Lyon eru í viðræðum en kaupverðið verður líklega rúmlega 30 milljónir evra.

Cherki er 21 árs gamall Frakki en hann byrjar á bekknum í kvöld þegar Frakkland mætir Spáni í undanúrslitum Þjóðadeildarinnar í kvöld.

Hann var aðeins 16 ára gamall þegar hann lék sinn fyrsta leik fyrir Lyon árið 2019. Hann hefur verið fastamaður í liðinu undanfarin þrjú tímabil en alls hefur hann leikið 185 leiki og skorað 29 mörk.
Athugasemdir
banner