
Ísland vann 3-1 útisigur gegn Skotlandi í vináttulandsleik á Hampden Park. Þetta var fyrsti sigur Íslands undir stjórn Arnars Gunnlaugssonar en íslenska liðið sýndi mun betri frammistöðu en í síðasta glugga.
Lestu um leikinn: Skotland 1 - 3 Ísland
Elías Rafn Ólafsson 8,5
Nýtti sitt tækifæri virkilega vel og átti nokkrar frábærar vörslur. Skotar hreinlega öfunduðu íslenska liðið á meðan þeirra markvörður, Cieran Slicker, var með trúðasýningu. Það er alvöru samkeppni um markvarðarstöðuna hjá Íslandi.
Guðlaugur Victor Pálsson 7,5
Lék fyrstu 60 mínúturnar og gerði það af góðum krafti. Skoraði með skalla og kom Íslandi í 3-1.
Sverrir Ingi Ingason 8
Mjög öflugur í hjarta varnarinnar. Þurfti að fara af velli vegna meiðsla þegar stundarfjórðungur var eftir. Hélt um lærið á sér og óvíst með þátttöku hans gegn Norður-Írlandi.
Hörður Björgvin Magnússon 6
Var mjög óvænt í byrjunarliðinu og lék fyrri hálfleik. Gaman að sjá hann aftur í landsliðsbúningnum en leikæfingin er ekki mikil og hann var of linur í varnarleiknum þegar Skotar jöfnuðu.
Mikael Egill Ellertsson 7
Skilaði sínu hlutverki mjög vel frá sér.
Ísak Bergmann Jóhannesson 6,5
Sendingarnar voru ekki að rata frá honum í byrjun leiks en svo komst það í betra lag og hann var fínn á miðsvæðinu.
Stefán Teitur Þórðarson 7
Átti stoðsendinguna á Andra Lucas þegar Ísland náði forystunni og var traustur á miðsvæðinu.
Albert Guðmundsson 8
Tvær stoðsendingar skráðar á Albert. Hann tók hornspyrnuna sem Skotar skoruðu sjálfsmark úr og átti sendinguna á kollinn á Guðlaugi Victori.
Hákon Arnar Haraldsson 8
Vantaði að sjálfsögðu ekki vinnusemina hjá fyrirliðanum í þessu verkefni. Öflugur í pressunni og heimamenn áttu í vandræðum með hann.
Jón Dagur Þorsteinsson 7
Stendur sig iðulega mjög vel þegar hann klæðir sig í landsliðsbúninginn og er með skemmtilega stuttan kveikiþráð.
Andri Lucas Guðjohnsen 7,5
Skoraði algjörlega gull af marki svo þögn sló á Hampden Park. Var mjög öflugur í pressunni.
Komu af bekknum:
Daníel Leó Grétarsson 7
Dagur Dan Þórhallsson 7
Aðrir spiluðu ekki nóg til að fá einkunn
Athugasemdir