
ÍBV 1 - 1 Keflavík
1-0 Lilja Kristín Svansdóttir ('10 )
1-1 Anita Lind Daníelsdóttir ('86 )
Lestu um leikinn
1-0 Lilja Kristín Svansdóttir ('10 )
1-1 Anita Lind Daníelsdóttir ('86 )
Lestu um leikinn
ÍBV og Keflavík áttust við í síðasta leik 6. umferðar Lengjudeildar kvenna í Eyjum í kvöld.
Heimakonur höfðu aðeins tapað einum leik og unnið fjóra fyrir leik kvöldsins. Liðið komst yfir snemma leiks þegar Allison Lowrey lagði boltann á Lilju Kristínu Svansdóttur sem stóð fyrir opnu marki og eftirleikurinn því auðveldur.
Keflavík fékk aukaspyrnu á hættulegum stað þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma. Anita Lind Daníelsdóttir tók spyrnuna og gerði sér lítið fyrir og skoraði beint úr henni.
Það reyndist síðasta mark leiksins og ÍBV stekkur upp í 2. sæti, upp fyrir Grindavík/Njarðvík en Keflavík fer úr 8. sæti í það sjötta.
Lengjudeild kvenna
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. HK | 6 | 5 | 0 | 1 | 16 - 7 | +9 | 15 |
2. ÍBV | 6 | 4 | 1 | 1 | 25 - 4 | +21 | 13 |
3. Grindavík/Njarðvík | 6 | 4 | 1 | 1 | 13 - 9 | +4 | 13 |
4. KR | 6 | 3 | 1 | 2 | 14 - 15 | -1 | 10 |
5. Grótta | 6 | 3 | 0 | 3 | 14 - 12 | +2 | 9 |
6. Keflavík | 6 | 1 | 3 | 2 | 7 - 8 | -1 | 6 |
7. Fylkir | 6 | 2 | 0 | 4 | 8 - 12 | -4 | 6 |
8. Haukar | 6 | 2 | 0 | 4 | 6 - 16 | -10 | 6 |
9. ÍA | 6 | 1 | 2 | 3 | 7 - 12 | -5 | 5 |
10. Afturelding | 6 | 1 | 0 | 5 | 3 - 18 | -15 | 3 |
Athugasemdir