Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fös 06. júní 2025 14:49
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Félag Birkis gjaldþrota
Birkir Bjarnason.
Birkir Bjarnason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ítalska félagið Brescia er gjaldþrota og mun að öllum líkindum vera áhugamannafélag frá og með næsta tímabili.

Brescia hafnaði í 15. sæti ítölsku B-deildarinnar á síðastliðnu tímabili en féll úr deildinni vegna fjárhagsvandræða.

Massimo Cellino, eigandi Brescia, skuldar starfsmönnum félagsins laun upp á 3 milljónir evra og svo eru einnig aðrar skuldir inn í myndinni.

Cellino, sem var áður fyrr eigandi Leeds, hefur ekki borgað þessar skuldir og bendir allt til þess að Brescia verði dæmt gjaldþrota og félagið verði ekki lengur atvinnumannafélag.

Birkir Bjarnason hefur spilað með Brescia frá 2023 en samningur hans við félagið er að renna út.

Andrea Pirlo, Pep Guardiola og Roberto Baggio eru á meðal fyrrum leikmanna Brescia.
Athugasemdir
banner