Cieran Slicker, markvörður skoska landsliðsins, var til umræðu á Stöð 2 Sport eftir leik Íslands gegn Skotlandi. Hann þurfti að koma inn á snemma leiks vegna meiðsla Angus Gunn.
Slicker er 22 ára gamall varamarkvörður Ipswich en þetta var fyrsti A-landsleikurinn hans. Hann er uppalinn hjá Man City en hann hefur aðeins komið við sögu í fimm leikjum í bikarkeppnunum tveimur á Englandi.
Hann var í stökustu vandræðum í kvöld og fékk ansi ódýr mörk á sig. Kjartan Atli Kjartansson, þáttastjórnandi á Stöð 2 Sport, spurði Lárus Orra Sigurðsson hvort hann vorkenndi Slicker.

Lestu um leikinn: Skotland 1 - 3 Ísland
„Nei, alls ekki, ég get ekki sagt það. Hann er ekki klár í þetta verkefni. Hann fær á sig mark um leið og hann kemur inn á sem hjálpar honum alls ekki. Hann er ekki tilbúinn, þetta er of stórt fyrir hann," sagði Lárus Orri.
„Maður sá það á líkamstjáningunni hans eftir að hann fékk á sig markið að hann náði sér aldrei á strik."
Athugasemdir