Noregur byrjar undankeppni HM frábærlega en liðið vann sterkan sigur á Ítalíu í kvöld. Þetta var fyrsti leikur Ítalíu í keppninni en Noregur er með fullt hús eftir þrjár umferðir.
Alexander Sörloth átti frábært tímabil með Atletico Madrid en hann kom Norðmönnum yfir eftir stungusendingu frá Antonio Nusa.
Alexander Sörloth átti frábært tímabil með Atletico Madrid en hann kom Norðmönnum yfir eftir stungusendingu frá Antonio Nusa.
Nusa var síðan á ferðinni þegar hann skoraði frábært mark og tvöfaldaði forystu Noregs. Það var síðan markahrókurinn Erling Haaland sem innsiglaði sigurinn með marki eftir undirbúning Martin Ödegaard.
Ísrael er í 2. sæti riðilsins með sex stgi, þremur stigum á undan Eistlandi. Liðin mættust í kvöld þar sem Ísrael bar sigur úr bítum.
Wales er á toppi J-riðils með sjö stig eftir öruggan sigur á Liechtenstein. Norður Makedónía gerði jafntefli gegn Belgíu og situr í 2. sæti með fimm stiig en Belgía í 4. sæti með eitt stig en þetta var fyrsti leikur liðsins.
Króatía valtaði yfir Gíbraltar í sínum fyrsta leik og situr í 3. sæti L-riðils. Tékkland er með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir eftir sigur á Svartfjallalandi sem er í 2. sæti með sex stig.
Estonia 1 - 3 Israel
1-0 Mattias Kait ('31 )
1-1 Dan Biton ('39 )
1-2 Dan Biton ('49 )
1-3 Mohammed Abu Fani ('90 , víti)
North Macedonia 1 - 1 Belgium
0-1 Maxim De Cuyper ('28 )
1-1 Ezgjan Alioski ('86 )
Wales 3 - 0 Liechtenstein
1-0 Joe Rodon ('40 )
2-0 Harry Wilson ('65 )
3-0 Kieffer Moore ('68 )
Czech Republic 2 - 0 Montenegro
1-0 Adam Hlozek ('23 )
2-0 Patrik Schick ('65 )
Norway 3 - 0 Italy
1-0 Alexander Sorloth ('14 )
2-0 Antonio Nusa ('34 )
3-0 Erling Haaland ('42 )
Gibraltar 0 - 7 Croatia
0-1 Mario Pasalic ('28 )
0-2 Ante Budimir ('30 )
0-3 Franjo Ivanovic ('60 )
0-4 Franjo Ivanovic ('63 )
0-5 Ivan Perisic ('73 )
0-6 Andrej Kramaric ('77 )
0-7 Andrej Kramaric ('80 )
Athugasemdir