Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   fös 06. júní 2025 09:19
Elvar Geir Magnússon
Glasgow
Dæmir sinn fyrsta A-landsleik
Landsliðið á æfingu á Hampden Park í gær.
Landsliðið á æfingu á Hampden Park í gær.
Mynd: KSÍ
Í kvöld klukkan 18:45 að íslenskum tíma, mun íslenska landsliðið leika vináttulandsleik gegn Skotlandi á Hampden Park í Glasgow.

Dómarateymi leiksins kemur frá Svíþjóð en aðaldómari leiksins verður Granit Maqedonci. Hann fæddist í Kósovó en flutti ungur að árum með fjölskyldu sinni til Svíþjóðar.

Hann er 36 ára og byrjaði að dæma í efstu deild í Svíþjóð 2018 en leikurinn í kvöld er hans fyrsti A-landsleikur.

Þess má geta að það verður notast við VAR myndbandsdómgæslu í leiknum í kvöld.

Skotland - Ísland
Dómari: Granit Maqedonci, Svíþjóð
Aðstoðardómari 1: Marcus Lundgren Klitte, Svíþjóð
Aðstoðardómari 2: Simon Kristensson, Svíþjóð
4ði dómari: Mohammed Al-Hakim, Svíþjóð


Slapp
Athugasemdir
banner