Ben Foster, fyrrum markvörður Manchester United, hefur látið argentínska kantmanninn Alejandro Garnacho heyra það. Foster var langt frá því að vera hrifinn af hegðun Garnacho eftir úrslitaleik Evrópudeildarinnar.
Garnacho lét í sér heyra á samfélagsmiðlum þar sem hann var ósáttur við það að vera á bekknum í leiknum og bróðir hans gerði slíkt hið sama.
Garnacho lét í sér heyra á samfélagsmiðlum þar sem hann var ósáttur við það að vera á bekknum í leiknum og bróðir hans gerði slíkt hið sama.
Eftir leikinn sagði Rúben Amorim, stjóri Man Utd, við Garnacho að hann mætti finna sér annað félag.
„Ég held að það sé best fyrir Man Utd að losa sig við hann," sagði Foster.
„Ég vil leikmenn sem spila fyrir liðið. Ég vil stráka sem eru góðir, heiðarlegir og leggja mikið á sig fyrir liðið. Ég fæ ekki þá tilfinningu frá Garnacho."
Athugasemdir