Kepa Arrizabalaga, markvörður Chelsea, er orðaður við nágrannana í Arsenal.
Kepa var á láni hjá Bournemouth á síðasta tímabili en hann hélt átta sinnum hreinu í úrvalsdeildinni.
Sky á Ítalíu greinir frá því að það sé 5 milljón punda kaupákvæði í samningi Kepa sem Arsenal íhugar að virkja.
Samningur hans við Chelsea rennur út næsta sumar.
Kepa er þrítugur og hefur spilað 13 A-landsleiki fyrir Spán. Hann hefur m.a spilað með Real Madrid og Athletic Bilbao. Hann gekk til liðs við Chelsea frá Bilbao árið 2018 en var á láni hjá Real Madrid tímabilið 2023/24.
Athugasemdir