Newcastle vill Elanga - Liverpool leggur fram nýtt tilboð í Wirtz - Höjlund til Inter?
   lau 07. júní 2025 13:00
Brynjar Ingi Erluson
Leikmaður Stuttgart of dýr fyrir Real Madrid
Xabi Alonso vill fá miðjumann í glugganum
Xabi Alonso vill fá miðjumann í glugganum
Mynd: EPA
Spænska félagið Real Madrid er hætt að eltast við Angelo Stiller, leikmann Stuttgart í Þýskalandi, en það telur hann of dýran og mun því leita að ódýrari kost á miðsvæðið. Sport segir frá.

Madrídingar þurfa að styrkja miðsvæðið fyrir komandi tímabil og var Stiller fyrsti kostur.

Stuttgart vill hins vegar fá 60 milljónir evra fyrir þýska landsliðsmanninn og er það verðmiði sem Real Madrid er ekki reiðubúið að greiða.

Defensa Central segir að Xabi Alonso gæti leitað til fyrrum félags síns, Bayer Leverkusen, en samkvæmt miðlinum er félagið í viðræðum um kaup á argentínska miðjumanninum Exequiel Palacios.

Hann er sagður falur fyrir 35 milljónir evra.

Palacios spilaði stóra rullu í liðinu er það vann deild- og bikar á síðasta ári, en hlutverk hans varð minna á síðasta tímabili þar sem hann lék aðeins 24 af 34 deildarleikjum liðsins.

Argentínumaðurinn er 26 ára gamall og var meðal annars í landsliði Argentínu sem vann HM fyrir þremur árum.
Athugasemdir
banner