Spánn 5 - 4 Frakkland
1-0 Nico Williams ('22 )
2-0 Mikel Merino ('25 )
3-0 Lamine Yamal ('54 , víti)
4-0 Pedri ('55 )
4-1 Kylian Mbappe ('59 , víti)
5-1 Lamine Yamal ('67 )
5-2 Mathis Cherki ('79 )
5-3 Dani Vivian ('84 , sjálfsmark)
5-4 Randal Kolo Muani ('90 )
1-0 Nico Williams ('22 )
2-0 Mikel Merino ('25 )
3-0 Lamine Yamal ('54 , víti)
4-0 Pedri ('55 )
4-1 Kylian Mbappe ('59 , víti)
5-1 Lamine Yamal ('67 )
5-2 Mathis Cherki ('79 )
5-3 Dani Vivian ('84 , sjálfsmark)
5-4 Randal Kolo Muani ('90 )
Spánn er komið í úrslit Þjóðadeildarinnar eftir sigur á Frökkum í ótrúlegum leik.
Nico Williams kom Spánverjum yfir á 22. mínútu þegar hann fékk boltann frá Mikel Oyarzabal sem gerði hrikalega vel þar sem varnarmenn Frakka fjölmenntu í kringum hann.
Oyarzabal var aftur á ferðinni þremur mínútum síðar þegar hann sendi Mikel Merino í gegn og hann skoraði örugglega. Undir lok fyrri hálfleiks kom Dean Huijsen boltanum í netið en Oyarzabal var rangstæður í aðdragandanum og markið dæmt af.
Spánn fékk vítaspyrnu snemma í seinni hálfleik og Lamine Yamal skoraði úr henni og kom Spáni í 3-0 forystu. Það var síðan Pedri sem skoraði fjórða markið stuttu síðar.
Frakkar fengu síðan vítaspyrnu og Kylian Mbappe skoraði úr henni og klóraði í bakkann. Spánverjar voru hins vegar ekki hættir því Yamal skoraði sitt annað mark og fimmta mark liðsins. Það var síðan Rayan Cherki sem skoraði annað mark Frakka.
Dani Vivian skoraði síðan sjálfsmark eftir fyrirgjöf frá Malo Gusto og gaf Frökkum smá líflínu. Þeir voru ekki dauðir úr öllum æðum því Randal Kolo Muani skoraði fjórða markið í uppbótatíma en nær komust þeir ekki.
Spánn mætir Portúgal í úrslitum á sunnudaginn en Portúgal lagði Þýskaland í gær.
Athugasemdir