Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fim 05. júní 2025 18:03
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Byrjunarliðin í Þjóðadeildinni: Doue, Mbappe og Huijsen byrja
Mynd: EPA
Spánn og Frakkland mætast í seinni undanúrslitaleiknum í A-deild Þjóaðdeildarinnar í kvöld. Liðin keppast um að mæta Portúgal í úrslitum.

Spánn og Frakkland eru liðin sem hafa unnið síðustu tvær keppnir. Spánverjar eru ríkjandi meistarar en Frakkar unnu árið 2021.

Dean Huijsen, nýjasti leikmaður Real Madrid, er í vörninni hjá Spáni. Mikel Oyarzabal, leikmaður Real Sociedad, er frammi ásamt Lamine Yamal og Nico Williiams.

Hjá Frökkum ereu Meistaradeildarmeistararnir Desire Douee og Ousmane Dembele í byrjunarliðinu ásamt Kylian Mbappe. Þá er Michael Olise með Dembele og Mbappe frammi.

Spánn: Simón; Porro, Le Normand, Huijsen, Cucurella; Zubimendi, Merino, Pedri; Yamal, N. Williams, Oyarzabal.

Frakkland: Maignan; Kalulu, Konaté, Lenglet, Theo Hernández; Doué, Rabiot, Koné; Olise, Dembélé, Mbappé.
Athugasemdir
banner
banner