Fjórir af fimm leikjum 6. umferðar Lengjudeildar kvenna fóru fram í kvöld. Eins og við sögðum frá fyrr í kvöld vann Grindavík/NJarðvík gegn KR.
HK er á toppnum eftir stórsigur gegn ÍA í Akraneshöllinni.
Afturelding nældi í sín fyrstu stig en Arna Pálína SIgurðardóttir var hetja liðsins þegar hún skoraði eina mark leiksins gegn Fylki sem hefur tapað fjórum leikjum í röð en liðið byrjaði mótið á tveimur sigurleikjum.
Þá vann Grótta öruggan sigur á Haukum en þetta var þriðji sigur liðsins í síðustu fjórum leikjum.

Grótta 5 - 1 Haukar
1-0 Rebekka Sif Brynjarsdóttir ('15 )
2-0 María Lovísa Jónasdóttir ('51 )
3-0 Katrín Rut Kvaran ('56 )
4-0 Hulda Ösp Ágústsdóttir ('59 )
5-0 Rebekka Sif Brynjarsdóttir ('65 )
5-1 Berglind Þrastardóttir ('80 )
Fylkir 0 - 1 Afturelding
0-1 Anna Pálína Sigurðardóttir ('19 )
ÍA 1 - 5 HK
Mark ÍA: Madison Brooke Schwartzenberger
Mörk HK: Loma McNeese x3, Ísabel Jasmín Almarsdóttir og Natalie Sarah Wilson.
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |
Athugasemdir