Newcastle vill Elanga - Liverpool leggur fram nýtt tilboð í Wirtz - Höjlund til Inter?
   fös 06. júní 2025 23:01
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Elías Rafn fær mikið lof - „Forréttindi að hafa þessa tvo gaura"
Elías Rafn Ólafsson
Elías Rafn Ólafsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hákon Rafn Valdimarsson
Hákon Rafn Valdimarsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hákon Rafn Valdimarsson hefur verið fastamaður í markinu hjá íslenska landsliðinu að undanförnu.

Elías Rafn Ólafsson fékk tækifæri til að spreyta sig í kvöld þegar Ísland vann Skotland ytra í æfingaleik og hann stóð sig með prýði.

Lestu um leikinn: Skotland 1 -  3 Ísland

Albert Brynjar Ingason og Lárus Orri Sigurðsson ræddu markmannsstöðuna hjá íslenska landsliðinu í umfjöllun eftir leikinn á Stöð 2 Sport.

„Hákon hefur heilt yfir staðið sig mjög vel en hefur aðeins hikstað í undanförnum leikjum. Hann hefur lítið sem ekkert spilað með Brentford að sama skapi er Elías líka dottinn út úr liðinu hjá Midtjyalland. Elías gerði ekki mikið rangt til að verðskulda að vera tekinn út úr liðinu á sínum tíma, þetta eru tveir frábærir markmenn og Elías ætti að fá nokkra leiki að mínu mati þangað til frammistaðan hans segi eitthvað annað," sagði Albert.

„Jú, ef ég ætti að giska á það þá fengi Hákon þann leik. Það er flott að það er heilbrigð samkeppni þarna á milli, hins vegar er það þannig með vörn og markmann að það er rosalega vont að vera skipta um," sagði Lárus Orri.

„Jafnvel þótt þeir séu álíka góðir. Þú vennst manninum sem er fyrir aftan þig. Það er nóg af breytingum í vörninni þó við séum ekki að rugla alltof mikið með markmannsstöðuna heldur. Það er betra að hafa samræmi í því."

Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari, var spurður út í markmannsmálin eftir leikinn.

„Það er forréttindi að hafa þessa tvo gaura, svo er Anton líka frábær sem þriðji markmaður í þessari ferð. Það er frábær samkeppni þeirra á milli, við gáfum Elíasi tækifæri núna og hann tók það svo sannarlega," sagði Arnar.

„Hann var öruggur í löppunum líka, það hefur verið sagt um hann að hann geti ekki hitt og þetta. Hann getur þetta alveg og hann sýndi það á stóra sviðinu hversu megnugur hann er, ekki bara í höndunum heldur löppunum líka."

Elías ræddi við Fótbolta.net eftir leikinn. Hann ætlar sér að sjálfsögðu að eigna sér stöðuna.

„Þetta er frábær tilfinning, þetta er fyrsti leikurinn minn í langan tíma. Mér leið eins og ég hafi hjálpað liðinu. Maður væri ekki í hópnum ef það væri ekki markmiðið á endanum. Við Hákon erum góðir saman, við styðjum hvorn annan," sagði Elías.
Þögguðu niður í skosku stuðningsmönnunum - „Verðum að hætta hugsa um okkur sem litla liðið"
Elías Rafn: Sexí varsla frá McTominay
Athugasemdir
banner
banner