Chelsea og Man Utd berjast um miðjumann - Palace vill leikmann Bayern og Brennan Johnson
   fös 06. júní 2025 19:56
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta deild kvenna: Fimm leikir í röð án sigurs hjá Val
Kvenaboltinn
Makala Woods
Makala Woods
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tindastóll 2 - 2 Valur
0-1 Nadía Atladóttir ('14 )
1-1 Makala Woods ('32 )
2-1 Elísa Bríet Björnsdóttir ('42 )
2-2 Bryndís Eiríksdóttir ('63 )
Lestu um leikinn

Valur hefur aðeins nælt í tvö stig úr síðustu fimm leikjum sínum í Bestu deild kvenna eftir jafntefli gegn Tindastóli í kvöld.

Valur komst yfir á Sauðárkróki í kvöld þegar Nadía Atladóttir fékk boltann inn á teignum og lagði hann framhjá Genevieve Crenshaw.

Eftir rúmlega hálftíma leik komst Makala Woods inn í sendingu frá Bryndísi Eiríksdóttur og skoraði á opið markið og jafnaði metin. Elísa Bríet Björnsdóttir kom síðan Tindastólsstúlkum yfir undir lok fyrri hálfleiks.

Bryndís bætti upp fyrir mistökin í fyrra marki Tindastóls og jafnaði metin með skallamarki en fleiri mörk urðu ekki skoruð. Valur stekkur upp í 5. sæti í bili að minnsta kosti úr 7. sæti en Tindastóll er áfram í 8. sæti.
Besta-deild kvenna
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Breiðablik 18 16 1 1 77 - 15 +62 49
2.    FH 18 12 2 4 44 - 21 +23 38
3.    Þróttur R. 18 11 3 4 34 - 22 +12 36
4.    Valur 18 8 3 7 30 - 27 +3 27
5.    Víkingur R. 18 8 1 9 40 - 39 +1 25
6.    Stjarnan 18 8 1 9 31 - 36 -5 25
7.    Þór/KA 18 7 0 11 31 - 41 -10 21
8.    Fram 18 7 0 11 24 - 43 -19 21
9.    Tindastóll 18 5 2 11 22 - 44 -22 17
10.    FHL 18 1 1 16 11 - 56 -45 4
Athugasemdir
banner