Sky Sports greinir frá því að framherjinn eftirsótti Jean-Philippe Mateta sé kominn í samningsviðræður við Crystal Palace.
Mateta er með tvö ár eftir af samningi við félagið og er eftirsóttur af stórliðum á borð við Manchester United og Juventus.
Hann hefur verið hjá Palace í fjögur ár og verið meðal betri framherjum deildarinnar á þeim tíma, þá sérstaklega á síðustu tveimur tímabilum. Mateta er kominn með 30 mörk og 8 stoðsendingar í 72 úrvalsdeildarleikjum á síðustu tveimur árum.
Það er forgangsmál fyrir Palace að semja við Mateta, en félagið er einnig að reyna að halda Eberechi Eze og Adam Wharton innan sinna raða eftir að hafa misst Michael Olise til FC Bayern í fyrra.
Mateta var keyptur til Palace fyrir 15 milljónir punda. Talið er að hann muni krefjast þess að hafa riftunarákvæði til að skrifa undir nýjan samning við félagið.
Athugasemdir