Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   lau 07. júní 2025 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Þjálfari Nökkva framlengir samninginn sinn
Mynd: EPA
Maurice Steijn, þjálfari Sparta Rotterdam, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið sem gildir út næsta tímabil.

Steijn tók við liðinu í fyrra en hann hafði stýrt liðinu áður frá 2022-23. Liðið hafnaði í 12. sæti deildarinnar en það var í harðri baráttu um Evrópusæti um tíma.

Nökkvi Þeyr Þórisson var á láni frá St. Louis City hjá Sparta Rotterdam á síðustu leiktíð en hann var keyptur til félagsins í sumar.

Þá var Kristian Nökkvi Hlynsson á láni frá Ajax en hann spilaði undir stjórn Steijn hjá Ajax í fyrra.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner
banner