Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   fös 06. júní 2025 08:01
Elvar Geir Magnússon
Glasgow
Skotar mun sigurstranglegri í kvöld
Frá æfingu landsliðsins á Hampden Park í gær.
Frá æfingu landsliðsins á Hampden Park í gær.
Mynd: KSÍ
Í kvöld klukkan 18:45 að íslenskum tíma, mun íslenska landsliðið leika vináttulandsleik gegn Skotlandi á Hampden Park í Glasgow.

Skotar eru taldir mun sigurstranglegri fyrir þennan leik í kvöld eins og sést vel á þeim stuðlum sem Lengjan býður upp á.

Stuðullinn á sigur Skotlands er 1,68 en á íslenskan sigur er 4,53. Þá er gefinn stuðullinn 3,38 á jafntefli í leiknum.

Sex sinnum hafa Skotland og Ísland mæst á fótboltavellinum í A-landsliðum karla. Skotar hafa unnið alla sex leikina gegn íslenska liðinu, síðast árið 2009.

Leikurinn í kvöld er fyrri vináttulandsleikur Íslands í þessum glugga en á morgun heldur hópurinn til Belfast þar sem leikið verður gegn heimamönnum í Norður-Írlandi á þriðjudag.

Ísland býr sig undir undankeppni HM sem fer fram í byrjun september en strákarnir okkar eru með Frakklandi, Úkraínu og Aserbaídsjan í riðli. Sigurliðið fer beint á HM en liðið í öðru sæti í umspil.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner