Newcastle vill Elanga - Liverpool leggur fram nýtt tilboð í Wirtz - Höjlund til Inter?
   lau 07. júní 2025 10:26
Brynjar Ingi Erluson
Newcastle á eftir Elanga - Höjlund aftur til Ítalíu?
Powerade
Anthony Elanga er orðaður við Newcastle
Anthony Elanga er orðaður við Newcastle
Mynd: EPA
Liverpool er að færast nær Wirtz
Liverpool er að færast nær Wirtz
Mynd: EPA
Rasmus Höjlund til Inter?
Rasmus Höjlund til Inter?
Mynd: EPA
Newcastle United hefur sett sig í samband við Nottingham Forest, Liverpool er búið að leggja fram endurbætt tilboð í Florian Wirtz og þá gæti Rasmus Höjlund farið aftur til Ítalíu. Þetta og margt fleira í Powerade-slúðurpakka dagsins.

Newcastle United ætlar að reyna við Anthony Elanga (23), leikmann Nottingham Forest og sænska landsliðsins. (Mail)

Liverpool hefur lagt fram nýtt tilboð í Florian Wirtz (22), leikmann Bayer Leverkusen. Tilboðið hljóðar upp á 113 milljónir punda, en Leverkusen vill fá meira fyrir leikmanninn. (Mail)

Arsenal hefur formlega sett sig í samband við RB Leipzig vegna slóvenska framherjans Benjamin Sesko (22), en ekkert tilboð hefur verið lagt fram til þessa. (Sky Sports)

Manchester United hefur lagt fram nýtt 60 milljóna punda tilboð í Bryan Mbeumo (25), leikmann Brentford og kamerúnska landsliðsins eftir að fyrsta tilboði félagsins var hafnað. (ESPN)

Inter hefur spurst fyrir um Rasmus Höjlund (22), framherja Manchester United. (Telegraph)

Franska félagið Lyon hefur hafnað fyrsta tilboði Manchester City í hinn 21 árs gamla Rayan Cherki. Viðræður munu halda áfram næstu daga. (Florian Plettenberg)

Tottenham þarf að greiða allt að 10 milljónir punda til að fá Thomas Frank frá Brentford, en félagið sér hann sem arftaka Ange Postecoglou sem var látinn taka poka sinn. (Mirror)

Ítalska meistaraliðið Napoli er að íhuga að leggja fram tilboð í Trevoh Chalobah (25), varnarmann Chelsea, en hann hjálpaði liðinu að vinna Sambandsdeildina og komast í Meistaradeild Evrópu. (Telegraph)

Bayern München, Real Madrid og AC Milan vilja öll fá Gianluigi Donnarumma (26), markvörð Paris Saint-Germain. Samningur hans við PSG rennur út á næsta ári. Juventus og Inter eru einnig áhugasöm. (Gazzetta dello Sport)

Arsenal er meðal þeirra félaga sem vilja fá Kepa Arrizabalaga (30), markvörð Chelsea. Hann er með 5 milljóna punda kaupákvæði í samningi sínum við enska félagið. (Evening Standard)

Enski miðjumaðurinn Angel Gomes (24), sem rennur út á samningi hjá Lille í lok mánaðar, hefur gert samkomulag um að ganga í raðir Marseille. Tottenham og West Ham voru einnig í baráttunni. (RMC Sport)

Marseille hefur þá boðið Nayed Aguerd (29), miðverði West Ham, samning. (Foot Mercato)

Newcastle United mun líklega ekki reyna við Hugo Ekitike (22), framherja Eintracht Frankfurt, en félagið er sagt ósátt með uppblásið verð leikmannsins. Frankfurt vill 80 milljónir punda fyrir Frakkann. (Telegraph)

Crystal Palace er alvarlega að íhuga að leggja fram tilboð í Ousmane Diomande, varnarmann Sporting í Portúgal, en hann kemur til með að kosta 45 milljónir punda. (Telegraph)

Sunderland hefur hafnað tilboði Borussia Dortmund í enska miðjumanninn Jobe Bellingham (19), en viðræður munu halda áfram um þennan efnilega leikmann. (Sky Sports)

AC Milan hefur sýnt Granit Xhaka (32), miðjumanni Bayer Leverkusen áhuga. Leverkusen gæti reynt að fá Malick Thiah (23) í skiptum. (Kicker)
Athugasemdir