Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fös 06. júní 2025 11:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gabriel framlengir við Arsenal - „Svo stoltur af sjálfum mér"
Mynd: EPA
Brasilíski miðvörðurinn Gabriel Magalhaes hefur skrifað undir nýjan fjögurra ára samning við Arsenal. Fyrri samningur hefði runnið út sumarið 2027 en nú er hann samningsbundinn til sumarsins 2029.

Gabriel er 27 ára og hefur verið hjá Arsenal frá 2020 þegar hann var keyptur frá Lille á 27 milljónir punda.

Hann er lykilmaður í liðinu og eitt helsta vopn liðsins í föstum leikatriðum. Hann hefur skorað 20 mörk í 210 leikjum í öllum keppnum. Hann og William Saliba hafa myndað ansi öflugt miðvarðapar.

Gabriel missti af síðustu tveimur mánuðum tímabilsins vegna meiðsla og þurfti að fara í aðgerð en ætti að ná byrjun næsta tímabils. Arsenal ætlar einnig að reyna framlengja við bæði Saliba og Bukayo Saka í sumar.

„Ég kom hingað sem ungur leikmaður og eftir næstum fimm ár er ég svo ánægður og hef lært mjög mikið. Ég er svo stoltur af sjálfum mér, þetta er frábært ferðalag og ég er svo ánægður að halda henni áfram. Ég vonast til að vinna bikara með þessu félaga, því ég elska félagið og fjölskyldan elskar líka félagið," segir Gabriel við undirskrift.

„Arsenal er frábært félag og ég er svo stoltur að skrifa undir nýjan samning. Ég elska félagið, elska stuðningsmennina, liðsfélagana, leikvnginn. Ég er svo stoltur og þakka fyrir allan ykkar stuðning. Við höldum áfram saman."
Athugasemdir
banner
banner