Sky Sports greinir frá því að Thomas Frank sé efstur á óskalistanum yfir mögulega arftaka Ange Postecoglou hjá Tottenham.
Postecoglou var rekinn sem stjóri Tottenham á dögunum og er Frank, stjóri Brentford, líklegasti arftakinn. Tottenham þarf þó að greiða 10 milljónir punda til að kaupa hann frá Brentford.
Takist Tottenham ekki að ráða Frank mun félagið reyna við Marco Silva og Andoni Iraola, sem eru við stjórnvölinn hjá Fulham og Bournemouth.
Tottenham vill ganga frá þjálfaraskiptum sem fyrst en félagið hefur þó ekki enn sett sig í samband við Brentford.
Frank er 51 árs gamall Dani sem hefur gert stórkostlega hluti á átta árum hjá Brentford.
Það hjálpar að Johan Lange, yfirmaður tæknimála hjá Tottenham, sé í góðum samskiptum við Frank. Þeir hafa þekkst lengi eftir að hafa starfað saman hjá Lyngby í danska boltanum. Þegar Lange starfaði hjá Aston Villa vildi hann ráða Thomas Frank sem þjálfara en tókst ekki.
Athugasemdir