Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
Kristall Máni: Fer mér bara vel að vera óþolandi
Kristian mætir funheitur í kanadíska kuldann - „Það besta sem maður gerir“
Aron Einar fann fyrir áhyggjum og hræðslu sinna nánustu - „Óþægilegt að vera í landi þar sem eru sprengingar“
Lúðvík ánægður að fá traustið: Riðillinn er galopinn
Gísli Gotti: Átti gott samtal við Arnar
Daníel Tristan hreinskilinn: Hún hefur alveg verið betri
Viktor Bjarki: Geggjað að sjá nafnið en pæli ekki mikið í þessu
Júlíus Mar: Hausinn vildi fara út
„Menn þurfa að vera á tánum til að spila í Víkingstreyjunni“
„Enginn sem óskar sér þess að mæta Víkingi“
Gæðastjórinn ætlar að reikna út xF
Birkir Már: Hefði sagt takk en nei takk væri hann ekki þarna
Víkingar unnu FH og Stjörnuna í dag - „Gera mér virkilega erfitt fyrir að velja í liðið“
Jökull: Yrði mjög sérstakt ef við myndum breyta einhverju þar
Heimir: Vel mannaðir, með frábæran þjálfara og ætla sér stóra hluti
Óskar Hrafn: Hef fullan skilning á því að okkur sé spáð 6. sæti
„Flottasta treyja sem við höfum spilað í"
„Fór frá því að spila yfir í það að mega ekki vera með á æfingum“
Sölvi: Teljum okkur vera með þannig hóp í ár
Stærsti samningur í sögu Víkings
   fim 05. júní 2025 22:19
Stefán Marteinn Ólafsson
Ívar Ingimars: Veit að við eigum miklu meira inni heldur en þetta
Kvenaboltinn
Ívar Ingimarsson annar af þjálfurum KR
Ívar Ingimarsson annar af þjálfurum KR
Mynd: Mummi Lú

KR heimsótti Grindavík/Njarðvík suður með sjó á JBÓ völlinn í kvöld þegar sjötta umferð Lengjudeild kvenna hóf göngu sína.


Lestu um leikinn: Grindavík/Njarðvík 3 -  1 KR

„Við áttum bara ekki skilið að fá neitt út úr þessum leik" sagði Ívar Ingimarsson annar af þjálfurum KR eftir leikinn í kvöld. 

„Grindavík/Njarðvík stóð sig bara mjög vel og voru betri aðilinn. Mér fannst ekkert mikið á milli liðana þannig séð þar til að fyrsta markið kom" 

„Ef við gefum ódýr mörk þá er erfitt að koma til baka úr því. Við skoruðum eitt mark í lokin en það var bara of seint þar sem að það 'effort' kom inn. Virkilega vel af þessu marki staðið og allt það en 3-0 undir og það var bara of mikið" 

Mikil jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og tók Ívar Ingimarsson undir það að fyrsta markið hafi skipt sköpum. 

„Alveg klárlega. Þetta er klisja en mörk breyta leikjum og ef við horfum á þessi þrjú mörk sem við fengum á okkur. Maður var svekktur og þegar maður horfir á þau í dag þá held ég að maður verði alveg jafn svekktur á morgun eða í kvöld þegar maður kíkir á þau" 

„Þau voru full einföld fannst manni. Það var ekki beint verið að spila okkur sundur og saman í þeim. Heilt yfir þá fannst mér við samt bara ekki eiga meira skilið  úr þessum leik heldur en að við fengum" 

„Það góða er að maður veit að við eigum miklu meira inni heldur en þetta og höfum verið að sýna það framan af" 

Nánar er rætt við Ívar Ingimarsson í spilaranum hér fyrir ofan.


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
Athugasemdir
banner