Heung Min-Son, fyrirliði Tottenham, sendi fallega kveðju á Ange Postecoglou á Instagram í dag.
Daniel Levy, eigandi Tottenham, tók ákvörðun um að reka Postecoglou aðeins nokkrum dögum eftir að hafa gert liðið að Evrópudeildarmeistara og tryggt um leið Meistaradeildarsæti.
Ákvörðun Tottenham kom nokkuð á óvart. Ange skilaði Tottenham fyrsta titlinum í 17 ár og þó gengið hafi verið arfaslakt í deildinni náði hann helstu markmiðum tímabilsins.
Enskir miðlar hafa greint frá því að margir leikmenn Tottenham séu óánægðir með ákvörðun Levy að reka stjórann og miðað við kveðju Son virðist það augljóst að hann sé á eftir honum.
„Stjóri. Þú komst félaginu á aðra braut. Þú hafðir trú á sjálfum þér og okkur frá fyrsta degi og hikaðir ekki í eina sekúndu, þó aðrir hafi gert það.“
„Allan tímann vissir þú hvað við vorum færir um að gera. Þú gerðir það á þinn hátt og þannig færðir þú félaginu besta kvöld þess í marga áratugi. Þetta eru minningar sem við munum varðveita að eilífu.“
„Þú treystir mér fyrir fyrirliðabandinu, sem er einn stærsti heiður ferilsins. Þetta hafa verið alger forréttindi að hafa verið á fremsta bekk í að læra af leiðtogahæfni þinni. Ég er betri leikmaður og persóna, og það er þér að þakka.“
„Ange Postecoglou, þú ert Tottenham Hotspur-goðsögn að eilífu. Takk, vinur,“ sagði Son á Instagram.
Athugasemdir