Newcastle vill Elanga - Liverpool leggur fram nýtt tilboð í Wirtz - Höjlund til Inter?
   fös 06. júní 2025 22:45
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Liverpool með endurbætt tilboð í Wirtz
Mynd: EPA
Liverpool hefur gert nýtt tilboð í Florian Wirtz leikmann Leverkusen.

Sky Sports greinir frá því að tilboðið hljóði upp á 113 milljónir punda. Enska félagið bauð Leverkusen 100 milljónir punda auk 13 milljónir punda í mögulegar aukagreiðslur.

Tilboðið er ennþá of lágt fyrir Leverkusen sem vill fá 126 milljónir punda fyrir leikmanninn.

Um leið og félögin ná samkomulagi mun þetta ganga hratt fyrir sig þar sem Wirtz hefur náð samkomulagi við Liverpool um að ganga til liðs við félagið.
Athugasemdir
banner
banner