Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fös 06. júní 2025 11:14
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Beckham verður sleginn til riddara
Frægu marki gegn Grikklandi í undankeppni fyrir HM 2002 fagnað.
Frægu marki gegn Grikklandi í undankeppni fyrir HM 2002 fagnað.
Mynd: EPA
Enskir miðlar fjalla í dag um það að David Beckham verði í næstu viku sleginn til riddara.

Karl þriðji Bretakonungur er sagður vera með nafn Beckham á heiðurslista sínum fyrir næstu viku.

Beckham er fimmtugur, fyrrum fyrirliði enska landsliðsins og risastórt nafn í enskri fótboltasögu. Hann var lengst hjá Manchester United og lék einnig með AC Milan, PSG, Real Madrid og LA Galaxy á sínum ferli.

David Beckham verður því Sir David Beckham og eiginkona hans, Victoria, mun fá nafnbótina lady Beckham, eða lafði Beckham.

Fyrrum stjóri Beckham, Sir Alex Ferguson, fékk sína nafnbót árið 1999.
Athugasemdir
banner