Klukkan 18:45 í kvöld mætast Skotland og Ísland í vináttulandsleik á hinum sögufræga Hampden Park í Glasgow.
Samkvæmt upplýsingum frá KSÍ hafa um 32 þúsund miðar verið seldir á leikinn en ekki er búist við því að mikið bætist við á leikdegi. Hampden Park tekur rétt rúmlega 50 þúsund manns.
100 blaðamenn munu starfa á leiknum og 40 ljósmyndarar.

Ísland æfði á Hampden Park í gær en þess má geta að sex skiptingar eru leyfðar í leiknum í kvöld og notast verður við VAR.
Sex sinnum hafa Skotland og Ísland mæst á fótboltavellinum í A-landsliðum karla. Skotar hafa unnið alla sex leikina gegn íslenska liðinu, síðast árið 2009.
Athugasemdir